Rón Svanson

Hver er hann?

Rón er eldri dvergur sem man heiminn áður en hann brotnaði. Hann var ungur járnsmiður á Faerenhome-eyjum þegar loftsteinninn skall á mánanum. Hann horfði á drekana dansa og heiminn brotna. Nógu gamall til að muna hvað var, nógu ungur til að aðlagast nýjum veruleika.

Af hverju hann yfirgaf heimaslóðir

Þegar öldungarnir greiddu atkvæði um að loka landamærunum, mótmælti Rón. Rökin hans voru einföld: "Dvergar hamra járnið. Í hvaða tíð sem er." Faerenhome gat ekki sannað það bakvið hlaðna veggi.

Hann var ungur og kjaftfor. Hann var gerður útlægur. Ef þú spyrð hann, þá fór hann sjálfur áður en nokkur gat tilkynnt honum dóminn. Hann telur þetta mikilvægan greinarmun. Öllum er sama.

Hvað knýr hann áfram

Sjálfsbjargarviðleitni, verkvit og gott handverk sem siðferðisregla. Þú leysir vandann með höfðinu, höndunum og seiglu. Ekki með göldrum. Ekki með bænum. Þú hamrar járnið sjálfur og lætur engan annan sjá um það fyrir þig.

Hann ber virðingu fyrir þeim sem byggja eitthvað raunverulegt. Hann hefur ekkert þol fyrir þeim sem gera það ekki.

Hann ber ákveðna virðingu fyrir hinum opinskáu. Ungt fólk sem neitar að þykjast hrifið. Allir aðrir kalla þau dónaleg. Rón kallar þau heiðarleg.

Hvernig er hann í fasi

Beinskeittur, laginn, þögull á köflum. En hann segir margt með þögninni einni saman. Hann talar líka reiprennandi Tauknmaal, svo reiprennandi að enginn annar skilur meirihlutann af þeim blótsyrðum sem hann táknar.

Hann óttast ekki nóttina. Hann ráfaði einn um meginlandið í áratugi. Lærði að veiða og lesa landið. Víðernið skilur hann. Fólk ekki endilega.

Hann býr á Höfn. Þegar hann kom þangað styrki hann veggina og smíðaði járnhliðið. Af hverju? Af því að léleg smíði móðgar hann.

Samband hans við Áttaguðina er daglegt, persónulegt, og ekki til umræðu. Hann telur að trúrækni sé eitthvað sem þú gerir, ekki eitthvað sem þú tilkynnir.

Hann borðar kjöt. Helst eitthvað sem hann veiddi sjálfur og eldaði yfir opnum eldi. Hann lítur á grænmeti með tortryggni og salat sem persónulega móðgun.

Tilfinningar

Rón ræðir ekki, viðurkennir ekki og fæst ekki við tilfinningar. Hvorki sínar né þínar.

En hann elskar. Hann óttast. Hann syrgir. Hann gleðst. Hann lætur það í ljós með muldri, nærveru og því sem hendurnar smíða.

Þegar hann sleppir sér

Sjaldan. Krefst dvárgavítis og vissu um að enginn sé að horfa. Þegar það gerist kemur allt annar dvergur í ljós. Hann drekkur orka undir borðið, dansar, syngur og segir magnaðar sögur. Morguninn eftir neitar hann öllu. Sönnunargögn eru aldrei til staðar.

Hvað hann gerir fyrir sig

Hann tálgar. Bein, við, hvað sem fer vel undir hnífsblað. Býr til smáhluti og dýr, verkfæri í smækkaðri mynd, samskeyti sem passa saman án nagla. Hann gerir þetta á meðan aðrir tala svo hann þurfi ekki að taka þátt. Útskurðurinn er fallegur. Hann skilur hlutina eftir hér og þar án skýringa. Hann er ekki gjarn á að viðurkenna að hlutirnir séu eftir hann.

Kanóinn

Hann smíðaði kanó. Með exi og útskurðarhníf, einn, úr einum trjástofni. Ótrúlega vandaður gripur. Hann rær á morgnana, í þögn, og telur þetta hreinustu tómstund sem lifandi veru stendur til boða. Ef þú nefnir handverkið kinkar hann kolli og brosir vandræðalega. Þetta er eins nálægt gleði og andlit hans kemst.

Af hverju leggur hann af stað í ævintýri

Hann gerir það ekki. Hann er alltaf dreginn inn í aðstæður vegna þess að hann er hæfur og allir í kringum hann eru annað hvort latir, hræddir eða að bíða eftir því að einhver annar geri það.

Engu að síður þá í hvert skipti sem einhver bankar á hurðina hans með vandamál tekur hann upp verkfærin. Hann kvartar allan tímann. Hann gerir það samt.

Það sem hann leitar að

Járnmóðr — steðji afa hans. "Sterkasti steðjinn sem dvergaþjóð hefur þekkt." Hann var á meginlandinu þegar landamærin lokuðust. Rón rekur slóðina skipulega, þolinmóður, án þess að segja nokkrum af hverju þetta skiptir máli.

Ef hann er spurður segir hann að gott verkfæri eigi ekki að liggja ónotað. Sannleikurinn er sá að þetta er eina sönnunin fyrir því að hann hafi einhvern tíma átt raunverulega fjölskyldu.


Opinber leyndarmál

Heilög afneitun

Vopn Róns glóir. Hann smíðaði það sjálfur. Heldur fullkomnu jafnvægi, viðhaldið af þráhyggju. Stundum þegar hann sveiflar því rennur guðdómlegt ljós eftir brún vopnsins.

Hann viðurkennir þetta ekki.

Heilagt högg? "Beitt blað. Góð sveifla." Ljósið? "Þú hlýtur að vera með eitthvað í augunum." Hann talar til guðanna af því að það er rétt, ekki af því að hann vilji eitthvað til baka. Það sem Áttaguðirnir gera við vopnið er milli þeirra og málmsins.

Sannleikurinn er sá að hann finnur fyrir þessu. Í hvert einasta skipti. Hiti í skaftinu, stöðugleiki sem er meiri en kunnátta ein getur skýrt. Hann veit nákvæmlega hvað þetta er. Hann bregst við eins og hann bregst við öllum tilfinningum: þegir, muldrar, blótar og heldur áfram að vinna.

Brynjurnar tvær

Rón á tvær fyrrverandi ástmeyjar. Báðar konurnar heita Brynja. Honum finnst það ekki fyndið.

Sú fyrri var dvergur, starfaði sem aðstoðarkona þorpsráðs. Nákvæm og stjórnsöm. Undir hennar áhrifum notaði Rón orðið "dagskrá." Hann lýsir þessum tíma sem bölvun.

Sú seinni var mannvera. Villt, hættuleg, og enn einhvers staðar þarna úti. Það veldur honum kvíða.

Báðar Brynjurnar voru á sama stað einu sinni. Rón Sveinson líka. Rón tók á það ráð að flýja út í skóg og hélt sig þar í þrjá daga. Hann mun aldrei útskýra hví hann flúði.

Lærisveinninn

Fyrir mörgum árum tók Rón að sér ungan lærisveinn. Kenndi henni alvöru handverk. Vandað, sterkt. Stúlkan var einstaklega fær.

Þau voru á ferð eftir myrkur. Hryllingarnir réðust á þau. Rón lifði af. Stúlkan ekki. Núna segist hann kjósa að vinna einn. Hann er að ljúga.

Elda

Það er kona í Haven. Hún er ein af kannski þremur manneskjum sem geta sagt Rón að setjast niður, og hann gerir það.

Hún hefur aldrei reynt að breyta honum, skipuleggja hann eða eyðileggja hann. Hún eldar kjöt eins og honum líkar án þess að spyrja. Hann lagar hluti fyrir hana án þess að vera beðinn. Hvorugt þeirra ræðir þetta fyrirkomulag.